Freestyle.
Uppákomur og greinar sem ég hef skrifað.
17. mars 2007
Ég var þeirra gæfu aðnjótandi að vera foreldri upp í Skarði þegar Freestyle klúbburinn var með Pizzu og vídópartý eftir lokun skíðasvæðisins laugardaginn 17. Mars. Þar fengu krakkarnir að prófa skíði, bretti, big foot og fleira. Þarna voru þrælvanir brettagaurar að prófa skíði í fyrsta skipti og kútveltust niður brekkurnar og gátu engan vegin staðið á skíðunum. Já það var mikið hlegið og þeir skemmtu sér konunglega. Pizzubíllinn mætti með pizzur og svangir munnar mættu til að gæða sér á Pizzu og horfa á vídeo og auðvita var það brettamynd sem þeir horfðu á. Oft gleymum við okkur við að hugsa um allt það sem á eftir að gera eða er ógert og munum þá ekki eftir því sem er gott hjá okkur. Það er nefnilega frábært starfið þarna upp í Skarði þar sem hann Úlfur ræður ríkum eða eins og krakkarnir kalla hann Úlla. Hann er eins og allir vita umsjónarmaður skíðasvæðisins en tók að sér að halda utan um krakkana okkar sem fara svona óhefbundnar leiðir í fjallinu og eru á brettum eða það sem þau kalla bara freestyle.
Er ég þá alls ekki að lasta það starf sem búið er að vera þekki bara ekki svo mikið til aftur í tímann, er sem sé að kynnast þessu eins og það er í dag og var síðasta vetur. Nú verða í vetur brettaæfingar og haldið utan um þessa litlu snillinga okkar sem eru á brettum. Frábært.
Í rauninni ættum við að skoða aðeins hvað við eigum gott hér á Siglufirði þar sem flest börnin okkar hafa tök á að stunda íþróttir af miklum móð og mörg hver í fleiru en einu. Svo les maður fréttir í blöðunum þar sem börn niður í 8 ára eru komin í eiturlyfjaneyslu sem reyndar manni finnst vera ótrúlegt og það sé svo fjarri manni, en er víst staðreynd. En með frábæru starfi íþróttafélaganna, þjálfara og góðum forvörnum, ásamt okkur foreldrunum getum við beint börnunum okkar á rétta braut í þessu lífi.
Kær kveðja Rósa Jónsdóttir
_____________________________________________
Páskahelgin.
Mót annan dag páska
Siglufjarðarmót í Freestyle pizza 67.
Á annan í páskum var svo skellt á móti fyrir Freestyle-hópinn.
9 keppendur skráðu sig og voru verðlaunin gefin frá Pizza 67.
Keppt var í stökki og eru þessir ungu og upprennandi brettakappar ansi lunknir á brettunum sínum.
Þetta var skemmtilegur endir á páskahelginni.
Reyndar verð ég að segja frá því að hann Úlli sem hefur haldið utan um kappana smíðaði líkan af bretti sem urðu verðlaunin fyrir 1. sæti.

Þarna er brettið og sá sem vann brettið....
Almar Freyr.
Kveðja Rósa Jónsdóttir
_____________________________________________
Skemmtileg helgi á enda.
Já það má segja að skemmtileg helgi sé á enda hjá Freestyle hópnum. Hingað var mættur Ágúst Geir Torfason brettakappi í boði foreldrafélags SSS og eyddi hann helginni hér í góðu yfirlæti með brettastrákunum okkar og sagði þeim til. Hann byrjaði að æfa skíði 3 ára gamall og 15 ára sneri hann sér að brettaíþróttinni. Hann er 28 ára í dag og féll vel í þann hóp sem við eigum hér af brettaköppum. Hann fræddi þá um það hvernig hann fór að því að ná svona langt og benti þeim á að grunnurinn að þessu öllu er hollur morgunmatur og hollt mataræði og benti þeim á hollustu íslenska vatnsins og að þeir þyrftu að drekka nóg. Hann sagði þeim að þetta gengi ekki nema að sjálfstraustið væri nú í lagi. (Og ekki vantar nú sjálfstraust hjá okkar mönnum eftir helgina.)
Einhverjum finnst þetta kannski glæfraleg íþrótt en einnig fór hann yfir öryggisatriðin með strákunum. En þeirra þjálfun felst mikið í að gera palla moka og þjappa og fyrir vikið verða þeir líka sterkari. Hann fræddi þá líka á hvað veðrið gæti breyst fljótt hjá okkur og að þeir þyrftu að passa sig á að komast niður úr fjallinu ef hann brysti nú á og hafa einn sem fylgdist með að leiðin sé greið að skálanum. Þetta voru sem sé allt mjög þarfar ábendingar fyrir okkar menn þar sem þeir eru oft ekki í alfaraleið þar sem gilin og þessir földu staðir í fjallinu heilla þá.
Nú síðan var haldið í brekkurnar og gilin með nóg af íslensku vatni. Hann benti þeim á að nesta sig vel þegar þeir færu í fjallið og borða á þriggja tíma fresti (og átti þá við hollan mat.) Í brettaíþróttinni er ekki hægt að æfa bara í klukkutíma á dag þar sem tíðin er svo stutt hjá okkur. Því eiga þeir að nota allan þann tíma sem þeir geta til að brettast þegar færi gefst. Einnig þurfa þeir að meta hvernig færið er. Núna um helgina var frekar blautt og mjúkur snjór þannig að það var kjörið að æfa stökk. Og það var sko sannarlega gaman að fylgjast með þeim.
Það var sannkallað ævintýri að fá þennan reynslubolta til að leiðbeina okkar mönnum. Að sögn Ágústar leist honum rosalega vel á fjallið okkar og er að spá í að koma hér aftur til að vera með strákunum. Hann talaði um hvað hann hefði fengið hlýlegar mótökur og fór örugglega þreyttur og sæll heim suður yfir heiðar á sunnudagskvöldið. Kannski hefur hann ekki reiknað með að gaurarnir okkar væru svona góðir eins og þeir eru. Þeir hafa fengið að æfa sig í vetur og hann Úlli hefur verið duglegur við að skapa þeim aðstæður þarna í fjallinu til að æfa einnig hefur hann sagt þeim til. En frábær helgi á enda.
Kær kveðja Rósa Jónsdóttir
Jæja það tekur allt enda og nú er þessi brjálaða brettahelgi búin hjá brettastrákunum okkar.
Ágúst Geir brettaþjálfari var hér um helgina með strákunum og eins og í fyrra og var þetta meiriháttar....

Ég var svakalega ánægð að heyra að þeir hafa bætt sig og eru hver öðrum betri... bæði í svigi og stökkum... frá því í fyrra
þannig að við getum verið sátt við það að aðstaðan hjá okkur til að iðka bretti er sko alveg meiriháttar....
og þeir duglegir að æfa sig.
Hér er hann Heimir að reyna back flipp sem tókst nú svona allt í lagi lendingin var hinsvegar dálítið hörð fyrir bossann.....
hehehehe en þetta eru svo harðir gaurar að það bítur ekkert á þeim.
Hér er svo Almar Freyr í einu af sínum hæstu stökkum sem hann tók um helgina.....
Ekkert smá svif hjá drengnum marrr.
Síðan má ekki gleyma að starfsmenn í fjallinu eru alveg einstaklega
liðlegir.... einnig verð ég að koma því að að það er komin nýr troðari
sem vonandi gerir þeim starfið auðveldara.
Og ekki skemmdi að veðrið gerði helgina alveg ógleymanlega. 

Á laugardagskvöldið var þeim svo öllum boðið út að borða... já há það verður sko að næra sig eftir erfiðan dag. 

Og þreyttar sjoppugellur skelltu sér á skíði þegar búið var að loka og það var æði eftir heitan dag að skella sér á skíði....
hér er ég að renna mér niður og Hrafnhildur að taka út taktana....
marrr er bara hel..... góður í þessu er hagggi....

En sem sé... frábær helgi á enda með frábærustu strákunum....
