12.01.2012 15:52

Ársuppgjör 2011

Ársuppgjör 2011....

Fyrri partur ársins var með eindæmum ágætur og margt gleðilegt sem gerðist eins og bloggfærslan hér fyrir neðan sýnir. 


Við eignuðumst barnabarn 7. Maí og er það sannarlegur gullmoli og vert að þakka fyrir heilbrigðan dreng sem er nú með búsetu hjá pabba sínum og okkur.  Snáðinn heitir Ævar Þór og er sonur Almars og Kristjbjargar.  Yndislegur í alla staði og hefur farið með okkur í gegn um erfiðan tíma og veitt mikla gleði á erfiðum stunum.

Seinni partur ársins er í eins konar þoku en að kvöldi 16. Nóvember þá varð hræðilegt slys þar sem Elva Ýr systurdóttir mín lést í bílslysi.

Ég veit ekki hvað skal segja en mér finnst þetta frekar ósanngjarnt og veit ekki hvort ég hafi einhvern rétt til að vera reið.


Minning:


Einhversstaðar staðar stendur að minningin lifi og það á kannski eftir að veita manni einhverja huggun. Til er fullt af myndum af þér og þær verður hægt að skoða.  En stundum langar mig svo mikið að fá að faðma þig einu sinni enn bara til að segja þér hversu mikið ég elska þig litla hnátan mín.  

Bílferðir með þér urðu skemmtilegustu bílferðir og síðustu bílferðina sem við fórum saman í var í október, þú varst að fara suður til pabba þíns og ég með allar kisurnar á kattarsýningu hjá kynjaköttum, okkur leiddist nú ekki létum alveg eins og við hefðum sloppið úr einhverri einangrun. En þannig má maður haga sér stundum. Við ræddum heilmikið um hvað þú værir glöð að fara til pabba þíns og Áslaugu en ég hafði svo miklar áhyggjur af því hvort þér þætti ekki erfitt að vera svo bæði jól og áramót fyrir sunnan. Svar þitt var " Nei Rósa veistu bara hvað, hún Áslaug er svoooo skemmtileg" Og mikið varð ég glöð að heyra að pabbi þinn ætti svo frábæra kærustu og ekki skemmdi að Breki væri líka skemmtilegur. Og elsku Elvan mín, þetta eru orð að sönnu hjá þér, nú er ég aðeins búin að kynnast henni Áslaugu og mér líkar sko vel við hana, þó ég vildi gefa allt til að snúa öllu við og ég hefði kynnst henni við aðrar aðstæður.


Mér finnst enn eins og að þú eigir bara eftir að opna forstofuhurðina og kalla inn " Hæ er einhver heima " Hvort sem það væri bara til að kíkja og tékka á hvernig við Ævar hefðum það og kettlingarnir eða til að fylgjast með hvernig gengi að prjóna næstu peysu á þig.  Og ótrúlegt faðmlag þitt sem þú gafst mér þegar peysan þín var tilbúin og smellpassaði á þig þetta faðmlag ætla ég að muna ásamt öllum hinum.  Einnig ætla ég að geyma fyrir Ævar broddgoltinn sem þú komst með handa honum,  það sem við vorum búnar að hlæja að þessum broddgelti.  En þetta var fyrsta gjöfin sem Ævar fékk eftir að hann flutti norður.  Ég veit að þú varst svo spennt í skólanum um morguninn þegar pabbi fór að sækja þig til að koma með þig hingað. Og vá hvað þú varst stolt af litla frænda þínum og spurðir hvort ég væri ekki glöð.


Ég er svo glöð í hjarta mínu að hafa fengið að eiga þig sem frænku og hafa einnig átt þátt í að kenna þér ýmislegt t. d. að synda. Það var hægt að líkja þér við leir þú mótaðist svo vel. Einnig verður aldrei tekið frá þér að sundtækni þín var yndisleg og sjá þig synda. Skriðsundið var alveg magnað. Og ég var nú frekar stolt að hafa átt þátt í því að kenna þér það.  Verra þótti mér þegar þú fórst svo að leiðrétta sundkensluna í skólanum. Þrátt fyrir að ég vissi að þú hefðir rétt fyrir þér,  við vissum betur.


Dýraáhugi þinn var endalaus og ég fræddi þig eins og ég gat um það sem ég kann. Þú ætlaðir þér að verða dýralæknir og það er alveg á hreinu að þar varst þú alveg á réttum stað.  Enda ræddum við líka að ég þyrfti þá ekki að skipta um nafn á dýralækni þar sem Elfa dýralæknir er okkar dýralæknir. Þú áttir svo stóran þátt í að bjarga þessum kettlingum " OKKAR " sem nú eru að fara að heiman frá mér og ég ætla að halda ótrauð áfram og gera mína kattarækt í minningu þinni. Það er svo skrýtið að föstudaginn fyrir slys þá voru 2 kettlingar dánir af 6 og ég var að segja þér að stundum gengi bara ekki allt of vel en maður þyrfti að reyna að berjast fyrir þessum 4 sem eftir voru. Og þetta þyrftir þú að vita sem verðandi dýralæknir að stundum er þetta bara ansi hart allt.  Þú tókst þessu samt ótrúlega vel og við vorum staðránar í að þessir 4 skyldu lifa og það tókst.


Elvan mín nú gerum við þetta saman og þú fylgist með þessu öllu. Ég ætla að byðja Lillu um að hjálpa mér að sauma fjólubláar gardínur fyrir sýningarnar og hafa nafnið þitt á ræktuninni " Okkar ". Þér fannst alltaf að nafnið sem ég fengi mér þyrfti að vera eitthvað svona spes fyrir mig.  Heimasíðan verður með fjólubláum bakgrunni og aldrei að vita nema ég eignist kettling sem ég skýri Bieber. Jón ætlar svo að hjálpa mér að finna fótboltanöfn á einhverja kettlinga.


Mér finnst samt svo skrýtið að hafa verið að ræða við þig dauðann svona stuttu fyrir slys og það var eitthvað svo einfalt að útskýra þetta. 

Nú reyni ég að heimfæra orð mín yfir á þennan mikla missi sem fráfall þitt er og þá er þetta allt svo hræðilega erfitt og ósanngjarnt.  En við verðum að halda áfram, það voru orðin mín til þín.


Þú getur ekki ýmindað þér hvað ég sakna þín mikið og hvað ég elska þig mikið það var erfiðast að fara í heitapottinn og þú ekki þar. Nærvera þín var svo yndisleg. Einnig á ég alltaf von um að hitta þig út á götu og kalla í þig  "Elva er þér ekki kalt þegar þú varst í gráu peysunni "... Og þú kallaðir til baka "nei, nei hún er svo hlý ". Þú varst falleg að innan sem utan.


Elska þig endalust elsku Elvan mín.

19.08.2011 09:23

Langt síðan síðast !!!

Dhhaaaa.... nú brá einhverjum ... já það er komið nýtt blogg.

Já þá er víst komin tími á smá blogg !!! Allavega er ansi langt síðan síðast, þar sem maður er svo mikið á feisinu... en að sjálfsögðu má ekki gleyma bloggsíðunum :)

Hér er allt í rólegheitum í kisuheiminum en við fórum að sjálfsögðu á vorsýningu kynjakatta með 4 ketti og gekk öllum vel við komum heim með 4 bikara þar sem Birnir og Ása urðu Bis báða dagana... Brandur varð alþjólegur meistari á sunnudeginum og Maja náði stiginu sínu og varð Biv á laugardeginum.  Bara frábært !!



Við erum ekki búin að stækka útibúrið eins og til stóð en það kemur og kisurnar sisum ekkert ósáttar við búrið sem þær fengu fyrir tveimur árum svo það er algjörlega búið að standa fyrir sínu.

7. maí varð svo Almar pabbi  :) 

Þessi flotti strákur fékk svo nafnið Ævar Þór.

Sumarið er búið að vera í rólegheitum og við höfum ekki verið mikið á ferðinni en við Fanney skelltum okkur suður í byrjun júní til að sækja Lillu, Alex og Nikky en Fanney og Steini ættleiddu systir hennar Ásu og er óhætt að segja að það hefur sko gengið ótrúlega vel. Steini og Jósteinn gerðu sér lítið fyrir og smíðu hér kattarklórur sem eru alveg að slá í gegn.



Við fórum til Egilsstaða 9 júlí þar sem Kiddý og Bergur skelltu sér í það heilaga á afmælisdegi langömmu Rósu og að sjálfsögðu átti Eyþór líka afmæli þennan dag. Yndisleg ferð.

Grand... sannkallað sveitabrúðkaup.

Þarna náðist mynd af okkur öllum systkinunum.

Æðislegur dagur þarna fyrir austan :)



Skelltum okkur á Húnavöku til Snorra og Grétu og skemmtum okkur alveg yndislega vel.


Við höfum fengið mikið af góðum gestum og kynnst alveg helling af fólki og já reyndar eignaðist Jósteinn heila ætt í föðurætt sem hann þekkti ekki og vissi ekkert um.
En í boði góðrar vinkonu hennar Lollu eða Ólafíu Hrannar skelltum við okkur í Ólafsfjörð og kíktum á föðursystir Jósteins hana Krummu og já þetta eru bara spennandi tímar og skemmtilegir við að kynnast nýjum skildmennum.

Sem sé rólegt og gott sumar búið og nú tekur haustið við Heimir ætlar að skella sér í menntaskólann á Tröllaskaga og Almar eftir áramótin :)

Svo er stefnan bara tekin á kynjakattasýningu í október :) 

P.S. Læt ekki líða svona langt þangað til næst.... 




    Flettingar í dag: 25
    Gestir í dag: 7
    Flettingar í gær: 158
    Gestir í gær: 10
    Samtals flettingar: 198518
    Samtals gestir: 50777
    Tölur uppfærðar: 28.1.2012 13:12:23